Lýsing
Nicolo Grippaldi er nýjasta og ein skærasta stjarna ítalskra vína frá rótum Etnu á Sikiley. Vínhúsið er lítið eða einungis 3.33 hektarar vínviðs, 100% bíódýnamískt vottað, bæði á ökrum og einnig í brugghúsi.
Þetta litla vínhús var stofnað árið 2015. Eigandi þess Nicolo Grippaldi hafði áður unnið hjá vínhúsinu Castello dei Rampolla og ákvað í framhaldi af því láta gamlan draum rætast og kaupa yfirgefnar vínekrur langafa síns hans Salvatore, í þorpinu Enna í 650 metra hæð á hálendi Sikileyjar. Hann fann nokkur tré / vínvið frá dögum langafa síns, tók græðlinga af þeim sem hann hlúði að og plantaði í ekru langafa síns. Þannig fær hann því þrúgur sem eiga uppruna sinn frá 150+ ára gömlum vínvið og gefur víninu töluvert meiri fyllingu en frá ungum vínvið.
Vín Grippaldi eru karakterrík vín, „Terroir“, ( jarðbundin) metnaðarfull og glæsileg.
Rauðvín frá Nicolo Grippaldi eru á vínseðlum margra Michelin staða, þ.á.m. þessum 3 stjörnu Michelin veitingastöðum:
1: Ristorante Osteris Francescana.
2: Ristorante Mudec / Enrico Bartolini í Mílanó.
3: Le Mirazur í Menton í Suður-Frakklandi. Le Mirazur var valinn besti veitingastaður í heimi 2019 og 2020!




