The GAEL Scottish Signature Gin

8.850 kr.

Styrkur: 40%

GAEL ginið hefur þá sérstöðu meðal gina að það er eimað fimm sinnum. Oftar en nokkurt gin í heiminum.

Bronsverðlaunahafi 2020 og 2021 hjá IWSC ( International Wine and Spirit Competition )

Skoska hálendsginið GAEL er ekki hefðbundið gin því það er með örlítinn keim af single malt whiskey. Það bíður upp á aðeins öðruvísi bragð í ginflórunni. Situr mitt á milli gin og whiskey.

Hið fullkomna gin fyrir whiskeyunnendur!

Ginið samanstendur af möltuðu byggi sem  grunnur og 10 mismunandi jurtum ( botanicals) þ.á.m. skosku lyngi sem gefur gininu djúpan og ríkan grunntón með vott af gulum lit.

Það er léttur sítrus og lyngkeimur í nefi.

Mjúkt á tungu með áberandi lyng og ferskum sítrus- appelsínuberki ásamt kardimommum, þistli og vægt krydduðum einiberjum.

Mjúka áferðin frá maltaða bygginu gerir GAEL tilvalið að drekka einnig óblandað með klaka.

Afskaplega mjúkt eftirbragð þar sem ginið er eimað fimm sinnum.  Enginn rammleiki eins og í sumum ginum.

AffBlitzz ehf
Vörunúmer: Gael Vöruflokkur: Tag: