Adaptation Cabernet Sauvignon 2018
11.890 kr.
Þrúgur: 80% Cabernet Sauvignon, 18% Merlot, 2% Petite Syrah
Dómar: Wine Enthusiast, 92 // Vivino 4.5 stig. (#1 Best wine in price range)
Styrkur: 14.6%
2018 Adaptation Cabernet Saugvinon hefur glæsileika og dýpt bestu vína frá Napa Valley héraðinu á helmingi lægra verði.
>>“ This glorius wine comes in at half the price of some boutique Napa brands,„<< (Chalkreport.com 8.des, 2021)
Þetta fallega rauðvín er dimmfjólublátt á litinn, flókið „full bodied“ rauðvín með mikinn Bordeaux stíl!
Þetta er þurrt rauðvín, verulega flókið nef með keim af villtum brómberjum, lúxuskirsjuberjum, skógarbotni, plómum og ferskum vorblómum.
Þetta magnaða rauðvín er með mikinn þroska, stóra fyllingu og glæsilegt fínlegt tannin með silkimjúkri áferð!
Kjallarameistari er Jeff Owens, „100 point winemaker„.
Hér er góð grein um þetta „Boltavín“: https://www.thechalkreport.com/post/wine-review-adaptation-2018-cabernet-sauvignon-napa-valley-ca-77
Lýsing
Þrúgurnar eru frá fjalllendi Howell Mountain til dalbotnsins í Oak Knoll, Stags Leap District og Carneros; Þessi fjölbreytileiki í ekrum hefur gert Odette kleift gegnum Adaptation vínin að búa til vín sem sýnir einstakan „terroir“ og breiðari tjáningu þeim sérstaka stað sem Napa dalurinn er!
Adaptation / Odette vínhúsið er með LEED GOLD vottun fyrir víngerð sína.
Vínhúsið er einnig vottað California Certified Organic Farmers ( CCOF)
Ísland er eina landið í Evrópu sem býður upp á þetta gullfallega rauðvín!
Viðbótar upplýsingar
| Framleiðandi |
|---|




